
84.4K
Downloads
155
Episodes
Tæknivarpið fjallar um tæknifréttir vikunnarog er eitt elsta virka hlaðvarp Íslands og
Episodes

Mar 6, 2021
Mar 6, 2021
1 hr 13 min
Riot games ætlar að halda risastórt rafíþróttamót á Íslandi í sumar og við erum spenntir! Twitter er komið með íslenska kennitölu og ætli það sé til að borga Halla laun? Microsoft hjúfrar sér upp að CarbFix verkefni Orkuveitu Reykjavíkur í von um kolefnisjöfnun. Farice truflar fjarskipti hjá Nova, eða öllum fjarskiptafélögum Íslands. Við erum ekki vissir.
Atli er kominn aftur og við fáum loksins Apple lekastöðuna.
Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.

Feb 25, 2021

Feb 19, 2021
Feb 19, 2021
1 hr 15 min
Tæknivarpið komið aftur hefðbundinn fréttaþátt, Síminn hefur loksins staðið við gamalt loforð og gefið út app á Apple TV. Elmar hélt áfram að leggja stærsta fyrirtæki í heiminum í einelti og Daníel sagði okkur frá því sem hefur heillað hann undanfarið. Stjórnendur í þætti 266 eru Gunnlaugur Reynir og Elmar Torfason, gestur þáttarins var Daníel Ingólfsson

Feb 11, 2021
Feb 11, 2021
1 hr 13 min
Tæknivarpið fær frumkvöðulinn Hjálmar Gíslason frá GRID í heimsókn til að ræða framtíðina. Hjálmar gaf út nýlega árlega tæknispá á Kjarninn.is fréttamiðlinum (sjá hér: https://kjarninn.is/skyring/2021-01-04-taeknispa-2021-thrir-sterkir-straumar/).
Stjórnendur eru Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.

Feb 5, 2021
Feb 5, 2021
1 hr 42 min
Við fáum frábæran gest til að fara yfir snjallvæðingu heimila, hann Marinó Fannar Pálsson, stofnanda Facebook hópsins Snjallheimili.
Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir og Elmar Torfason.

Jan 20, 2021
Jan 20, 2021
2 hr 9 min
Þáttur ársins 🎇
Nú er loksins komið að því. Þáttur ársins er mættur, aðeins seinna en vanalega útaf sottlu. Þar fer næstum allur hópurinn bakvið Tæknivarpið (og Simon.is) yfir það sem var mest spennandi í nýju tækni og tækjum á árinu sem var að líða.
Flokkarnir eru eftirfarandi:
- Græja ársins
- Sími ársins
- Kaup ársins
- Leikur ársins
- Farleikur ársins
- App/forrit ársins
- Kvikmynd ársins
- Sjónvarp ársins
- Hlaðvarp ársins
- Stærsta tæknifrétt ársins
Við þökkum kærlega fyrir innsend svör hlustenda og árið sem var að líða 🙏🏻

Jan 8, 2021
Jan 8, 2021
1 hr 1 min
Það er fullt af íslenskum tæknifréttum á nýju ári, Twitter kaupir Ueno, Matís prentar mat og CERTÍS fær nýjan stjórnanda. Samsung opnar nýja árið með árgerð 2021 af S-línuni sem verður kynnt í næstu viku. Þetta verða þrír nýir snjallsímar: Samsung Galaxy S21, S21 Plus og S21 Ultra. Elmar heldur áfram að leggja Apple í einelti. AirPods Pro og Airpods Max vandamál, AirPods gen 3 á leiðinni á markað? Sjónvörp árið 2021. Hvað eru dimming zones? Svo kaupir Elmar dót.
Stjórnendur í þætti 262 eru Gunnlaugur Reynir, Bjarni Ben og Elmar Torfason.

Dec 22, 2020
Dec 22, 2020
1 hr 2 min
Það er búið að kynna fullt af nýjum símum. Sími með myndavél undir skjá, fyrsti síminn með Snapdragon 888 örgjörva með innbyggðu 5G, og Oneplus sími með litabreytanlegu baki sem enginn þarf. Solarwinds var hakkað, en hvað þýðir það eiginlega? Lekar um Apple bíl eru komnir af stað aftur eftir að þeir lognuðust af og það virðist vera bíll á leiðinni á árinu 2024.
Við rennum svo yfir okkar uppáhalds tæknijólagjafir þetta árið. Spoiler: það eru Apple vörur á listanum.
Stjórnendur í þætti 261 eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.

Dec 21, 2020
Dec 21, 2020
1 hr 55 min
Covid19-jól eru handan við hornið og við ætlum að kafa í tölvuleikina. Við fáum til okkar góðan gest, hann Snæbjörn Ragnarsson (einnig kallaður Bibbi), þungarokkara og hlaðvarpsstjórnanda. Við ræðum stærstu leiki ársins og klúður ársins: Cyberpunk 2077. Við færum okkur svo í framtíðina og ræðum mest spennandi leikina sem eru væntanilegir á næsta ári.
Stjórnendur eru Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.

Dec 10, 2020
Dec 10, 2020
1 hr 12 min
Meðal þess sem rætt er í þætti vikunnar er óvænt útspil Apple sem kynnti ný heyrnartól yfir eyrun sem kallast AirPods Max. Óhætt er að segja að meðlimir Tæknivarpsins eru misjafnlega spenntir fyrir þeim en sammála um að hönnunin er falleg. Eða kannski ekki.
Þá veltu umsjónarmenn þáttarins því fyrir sér hvernig á því stendur að nýju Macbook Air og Pro tölvurnar með M1 örgjörvanum eru enn ekki komnar í sölu á Íslandi. Allavega ekki opinberlega. Gulli ætlar að vaka fram eftir og spila Cyberpunk 2077 leikinn sem verður gefinn út kl. 00:01 þann 10. desember 2020.Af ýmsu öðru sem var rætt má nefna að HBO Max er væntanlegt til Íslands á næsta ári, Elko seldi fleiri PS5 tölvur en þau áttu á lager og nýir lekar sterka vísbendingu um útlitið á Samsung S21, S21 Plus og S21 Ultra og reikna má með að símarnir komi jafnvel fyrr á markað en helstu spekúlantar gerðu ráð fyrir.
Umsjónarmenn þessa vikuna eru: Andri Valur, Atli Stefán, Elmar og Gunnlaugur Reynir.
